5.6.2007 | 11:27
Specials og hressandi getraun
Mikið rétt hjá Agli, lagið sem var merkt "xxxxx-xxxxx" í spilaranum hér til hægri heitir "Ghost town" með The Specials. Þeir kölluðu sig upphaflega The Coventry Specials og það svarar auðvitað spurningunni um hvaðan þeir komu. Allt laukrétt.
The Specials spiluðu nokkurs konar nýbylgju-ska tónlist og kom lagið sem spurt var um út árið 1981. Þetta var mikil ádeila á ástandið sem ríkti í heimalandi þeirra og þá sérstaklega á stefnu Tatcher-ríkisstjórnarinnar en hún þótti leiða til mikils atvinnuleysis og fór heimaborg Specials-manna ekki varhluta af því. Eitt mesta atvinnuleysi landsins á þessum tíma var einmitt í Conventry, hátt í 20%.
Það má auðvitað deila um hvort að The Specials teljist vera "one hit wonders"eða ekki, þeir náðu fleiri lögum en þessu inná topp 10 í UK og teljast flytjendur á því kaliberi sjaldnast til eins smells undra. Ég, persónulega, þekki bara þetta lag með þeim og því falla þeir undir þennan vafasam hatt hjá mér.
Lagið "Ghost town" var þrjár vikur á toppnum í Bretlandi og auðvitað víðar í Evrópu. Myndband við lagið:
Getraun
Ég hef alltaf haft smá áhuga á plötuumslögum og þá aðallega þeim sem eru í eldri kantinum (60s, 70s, 80s). Í gamni mínu þá datt mér í huga að skella fram getraun sem tengist plötuumslögum, svona aðeins til þess að kanna snilli og gáfur lesenda síðunnar.
Þetta eru þrjár spurningar og allar tengjast þær plötuumslögum með skírskotun í atburði úr mannkynssögunni. Í öllum tilvikum spyr ég um heiti á plötu og flytjanda.
1. Í maímánuði árið 1937 fórst stýranlegur loftbelgur við Lakehust í New Jersey. Augnablikið sem slysið átti sér stað prýðir frægt plötualbúm. Hvaða heitir platan og hverjir flytja?
2. Annað sögufrægt slys átti sér stað síðla árs 1895 í París, nánar tiltekið á Gare Montparnasse lestarstöðinni. Á plötuumslagi frá upphafi 10. áratugarsins er hægt að sjá slysstaðinn nokkrum augnablikum eftir að slysið átti sér stað. Hvað heitir platan og hverjir flytja?
3. Í upphafi sumars árið 1963 brenndi Víetnamskur búddamunkur sig til dauða á miðjum gatnamótum í miðbæ Saigon. Með þessu var hann að mótmæla ofsóknum Suður-Víetnamska forsetans og hans stjórn á hendur búddatrúa. Á plötuumslagi frá upphafi síðasti áratugar, sést þegar búddamúnkurinn situr í ljósum logum hvað heitir platan og hverjir flytja?
Þeir sem hafa áhuga og/eða nennu svara í kommentadálkinn hér fyrir neðan.
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.6.2007 | 12:41
Eins smells undur: David McWilliams
David McWilliams heitinn, fæddist í Belfast á Írlandi árið 1945. David þessi var þessi týpíski singer/songwriter a la Donovan og Bob Dylan en að margra mati var hann ekki nógu orginal. Árið 1966 kom hans fyrsti singull og eftir það tók Phil Solomon, landi hans sem hafði m.a. umbað fyrir Them og Bachelors, við stjórninni og reyndi að koma David á framfæri. Ári síðar tók David upp heilar þrjár breiðskífur (allt á árinu 1967) og pródúserinn var ekki af verri sortinni, Mike Leander sem m.a. hafði pródúserað Marianne Faithfull. En, allt kom fyrir ekki, það var aðeins eitt lag sem náði einhverjum vinsældum af ráði og það var lagið sem hann er þekktur fyrir, The days of Pearly Spencer. Lagið var spilað grimmt á bresku útvarpsstöðvunum en einhverja hluta vegna náði það ekki miklum hæðum á vinsældarlistunum. Lagið var hins vegar mjög vinsælt í Belgíu, Hollandi, Frakklandi og á Ítalíu.
Lagið sjálft er stórgott, mjög myrkt yfir því og sinfóníu-stemmarinn með vælandi fiðlurnar gefur því skemmtilegan svip. Þetta er í anda þeirrar sækadelíu sem var í gangi á þessum tíma (um 1967).
Sögur herma að David hafi aldrei litið á sig sem stjörnu, þó svo að hann væri að spila fyrir fullu húsi á föstudagskvöldi þá lét hann sig ekki vanta í leik með fótboltaliði sínu morguninn eftir í laugardagsdeildinni í heimabæ sínum. David hélt áfram að búa til tónlist á 8. áratugnum en án teljandi vinsælda. David lést árið 2002.
[Heimasíða aðdáendaklúbbs David McWilliams]
Getraun
Og ein lauflétt getraun í helgarlok.... það er lag hérna í tónlistarspilaranum hér til hægri merkt "xxxxx-xxxxx". Það má auðvitað deila um hvort þetta sé eins smells undur, í mínum augum og eyrum er það svo. Allavega, þá spyr ég um lagaheiti, hljómsveit og hvaðan þeir eru (borg og land).
Þeir sem hafa áhuga geta svarað í kommentakerfið.
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
31.5.2007 | 13:30
Danskt band á uppleið: Choir of young believers
Fyrsta plata "kórsins" kom út núna á dögunum og er þetta 4-laga EP-stuttskífa sem inniheldur m.a. smellinn "Sharpen your knife" sem hefur fengið mikla spilun bæði í útvarpi og sjónvarpi (hlustið á lagið hér til hægri).
Choir of young believers spilar þjóðlaga-skotið indípopp og þeir sem ætla á Hróarskelduhátíðina geta upplifað Jannis (og hátt í 8-manna hljómsveit) þar.
Lög með Choir of young believers í spilaranum hér til hægri:
- Sharpen your knife
- We talk on the phone
Hérna getið þið séð Choir of young believers taka tvö lög ("Riot" og "Sharpen your knife") í danska ríkissjónvarpinu:
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.5.2007 | 13:27
Fagnaðarefni
Nú er bara að næla sér í nýjustu plötuna "Pocket symphony" og rifja upp gamla stöffið.
Air spilar "Venus" á tónleikum:
Miðasala á tónleika Air hefst á morgun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.5.2007 | 19:34
Kings of Leon og Grinderman
Hef verið að láta tvær afar ólíkar og mis góðar plötur rúlla síðustu daga og vikur. Hér koma hugrenningar mínar um þær.
Í hnotskurn: Because of the times Kings of Leon [2007]
Þriðja breiðskífa þeirra Followill-bræðra (og frænda) kom út í byrjun apríl og get ég ekki sagst hafa orðið mikið var við það. Óþarfi er að fara mörgum orðum um hversu mikil snilld fyrsta breiðskífa þeirra var (Youth and young manhood frá 2004) en einhverja hluta vegna fór breiðskífa númer 2 (Aha Shake Heartbreak frá 2005) alveg fram hjá mér, hvað þá þessi nýjasta. Jæja, þá að plötunni.... tja... er ekki alveg að ná henni, satt best að segja. Nokkrir ágætis sprettir en ekki meira en það. Þeir ná einhvern veginn aldrei flugi og það vantar þennan klassíska rauða þráð sem mér finnst einkenna góðar plötur. Ég held að það hafi verið Pitchforkmedia sem sögðu eitthvað á þá leið að Kings of Leon væru því miður búnir að breytast úr Suðurríkja-Strokes í Suðurríkja-U2. Kannski ekki alveg það sem mér datt fyrst í hug en.... ekki nógu gott eintak!
Hápunktur: Knocked up (hlustið á lagið hér til hægri)
Einkunn: 5.5
Fróðleiksmoli: Kannski er hluti skýringarinnar á því að Pitchfork kalli Kings of Leon Suðurríkja-U2, að þeir túruð með U2-flokknum á síðasta Bandaríkjatúr sveitarinnar.
[myspace] [myndband] - við lagið On call sem er að finna á plötunni.
Í hnotskurn: Grinderman Grinderman [2007]
Ég hef aldrei verið Nick Cave-maður og ástæðan fyrir því er einföld: ég hef einfaldlega aldrei gefið honum sjéns! Þetta nýja hliðarverkefni hans (og Bad Seeds félaga hans), Grinderman, finnst mér hins vegar frábært. Þessi plata, Grinderman, er það besta sem ég hef heyrt á þessu herrans ári, 2007. Attidútið og skítuga sándið á þessari plötu er ekta, lögin er flest öll virkilega góð.... þannig að ég verð bara að segja alveg eins og er: hrikalega þétt eintak hér á ferð, usssss....! Þeir sem hafa nú þegar ekki heyrt þetta - út í búð eða halið þessu niður. Mæli með þessu.
Hápunktar: No pussy blues, Grinderman og Go tell the women (hlustið á lögin hér til hægri)
Einkunn: 9.0
[myspace] [myndband] - No pussy blues spilað live í þætti Jools Holland á BBC
Tónlist | Breytt 30.5.2007 kl. 18:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.5.2007 | 08:55
Svar við getraun: Curt Smith úr Tears for Fears
Curt Smith er hér vinstra megin með félaga sínum Roland Orzabal úr Tears for Fears.
Nýtt lag og myndband með Sir Paul:
Þetta er fyrsti síngullinn af nýju plötunni og heitir lagið "Dance tonight". Platan "Memory almost full" kemur út 5. júní næstkomandi, bíð spenntur, mér fannst síðasta plata Paul "Chaos and creation in the backyard" með betri plötum ársins 2005.
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.5.2007 | 21:15
Wilco, Sea and the Cake og hver er maðurinn??
Hef verið að hlusta á nokkrar nýjar plötur upp á síðkastið. M.a. Björk, Grinderman, Kings of Leon, Feist og Kaiser Chiefs, ætla mér að segja skoðun mína á þessum plötum bráðlega. Hérna koma svo Wilco og Sea and the Cake.
Í hnotskurn: Sky blue sky - Wilco [2007]
Sjötta stúdíóplata Chicago-drengjanna í Wilco kom út 14. maí síðastliðinn. Ég hef vitað af þessu bandi í nokkur ár en aldrei veitt því neinn sérstakann áhuga. Ákvað að renna þessari plötu í gegn og sé svo sem ekki eftir því. Þetta er afar þægilegt kántrýskotið indípopp og rennur platan áreynslulaust í gegn. Kannski að notalegheitin séu þó um of, skilur ekki mikið eftir sig. Kannski að maður þurfi að hlusta meira á hana? Já ég trúi því að hún verði bara betri við hverja hlustun.
Hápunktar: Either way og það mjög svo Dylan-íska What light. (HLUSTAÐU Á LÖGIN HÉR TIL HÆGRI)
Einkunn: 6.5
Fróðleiksmoli: Gáfu út plötuna Mermaid Avenue ásamt Billy Bragg en platan innihélt þeirra útgáfur af gömlum ókláruðum Woodie Guthrie-lögum.
[myspace] [myndband] Þáttur David Letterman: Wilco taka lagið Hummingbird af plötunni A ghost is born frá árinu 2004.
Í hnotskurn: Everybody The Sea and Cake [2007]
Þetta band er ekki nýtt af nálinni, var stofnað í byrjun síðasta áratugar og var af mörgum talin vera mikil póstrokk-súpergrúppa (menn komu m.a. úr Shrimp Boat, Coctails og Tortoise). Þetta er sjöunda breiðskífa sveitarinnar og mætti lýsa þessu sem skemmtilegum bræðingi af indírokki, soul og smá jazz, sem sagt nokkuð tilraunakennt. Nokkuð björt og þægileg plata sem þó nær sér ekki á flug.
Hápunktar: Up on crutches og Coconut. (HLUSTAÐU Á LÖGIN HÉR TIL HÆGRI)
Einkunn: 6.0
[myspace] - [myndband] Bowie-lagið Sound and vision, flutt af The Sea and cake.
Hver er maðurinn??
Svona rétt í lokin og algjörlega til gamans gert.. þá spyr ég: hver er maðurinn á myndinni hér fyrir neðan? Bónusspurning: í hvaða bandi var hann í "gamla daga"? Þeir sem telja sig vita einhvern deili á kauða geta svarað í kommentadálkinn hér fyrir neðan.
Tónlist | Breytt 23.5.2007 kl. 06:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.5.2007 | 13:03
Langar þig á tónleika heima í stofu?
Cold War Kids (18.11.2006)
Midlake (16.08.2006)
Bright Eyes (12.07.2005)
Ron Sexsmith (30.05.2005)
Þetta er bara brot af því sem í boði er. Það mætti einning nefna Arcade Fire, Bloc Party, Damien Rice, Josh Ritter, Echo and the Bunnymen og fleiri og fleiri. Af íslensku efni þarna þá er t.d. að finna tiltölulega nýja tónleika með Benna Hemm Hemm og tónleika með Emilíönu Torrini frá marsmánuði 2005.
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.5.2007 | 21:25
Hvað getur maður sagt?
Ég trúi ekki öðru en að það sé gott grín í gangi hjá Samwell og félögum. Skemmtilegur karakter hér á ferðinni, lagið og myndbandið hreint út sagt ógleymanlegt. Það er víst mikið talað um þetta myndband í bloggheiminum í dag.
[Heimasíða] [Viðtal við Samwell]
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.5.2007 | 12:09
Mánudagsgrautur
Fjölbreyttur og næringaríkur grautur í upphafi vikunnar.
Elliott Smith High times
Þetta lag, High times, er eitt af þeim fjölmörgu úr smiðju Elliott Smith heitins, sem enn ekki hafa komið út. Frábært lag sem varð til á árunum 1994-1997 og hann tók víst oft á tónleikum, lagið verður að finna á safnplötunni New moon sem kemur út á morgun, 8.maí, og gefin út af gamla leibelnum hans Elliott, Kill Rock Stars. Platan verður stútfull af sjaldgæfum upptökum sem og áður óútgefnu efni frá árunum ´94 til ´97. Hight times er rábært lag í anda Elliott Smith heitins. Njótið hér til hægri.
[Kill Rock Stars]
Björk Earth intruders
Platan Volta kom út í dag og spurning hvort maður skelli sér ekki á eitt eintak? Fyrsti síngullinn Earth intruders hefur fengið að hljóma núna í nokkrar vikur og venst bara hreint ágætlega. Hef heyrt 1-2 lög til viðbótar af plötunni og þau lofa góðu. Svo er hún að fá glimrandi dóma. Earth intruders er hér til hægri til streymingar.
[myspace]
CocoRosie Rainbowarriors
Þær systur, Sierra og Bianca, kalla sig CocoRosie og gáfu nýverið út sína fjórðu breiðskífu og ber hún heitið "The Adventures of Ghosthorse and Stillborn". Lagið Rainbowarriors er upphafslag plötunnar og það eina sem ég hef heyrt af henni. Þær stöllur hafa reyndar farið nett í taugarnar á mér í þó nokkurn tíma en það virðist vera að þoka aðeins til í þeim efnum. Platan hefur fengið misjafnar viðtökur en þetta lag er í fínu lagi og lofar góðu. Saga þessara systra er nokkuð merkileg og geta áhugasamir lesið nánar um það hér. Hlustið hér til hægri.
[myspace]
Tónlist | Breytt s.d. kl. 12:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar