Leita í fréttum mbl.is

Bestu erlendu plötur ársins 2007

Ég hef á síđasta ári skrifađ smá greinarstúfa hér á bloggiđ og gefiđ hátt í fimmtíu breiđskífum einkunn, ţetta hefur ađallega veriđ gert til gamans og dćgrarstyttingar. Nú víst ađ áriđ 2007 er liđiđ er viđ hćfi ađ gera upp tónlistaráriđ og birta topp 10 yfir bestu erlendu plöturnar. Nú koma einkunnagjafarnir sér ađ góđum notum og eru ţćr gott viđmiđ ţegar litiđ er um öxl og rýnt í tónlistaráriđ 2007. Topp tíu erlendu plötur ársins 2007 ađ mínum dómi eru:

#10 Easy tiger – Ryan Adams
Ryan_ADams_Easy_Tiger
Ţessi plata fékk ađ rúlla óheyrilega oft í gegn á tímabili hjá mér á ţessu ári, ţetta er ţćgilegt kántrýskotiđ popp/rokk og margar góđar lagasmíđar hjá Ryan Adams. Ţessi plata var í miklu uppáhaldi hjá mér á ţessu ári, engin tímamótaplata en “solid” er hún.

Upphaflegur dómur: 8.0 [Mćspeis]

#9 Sheperd’s dog – Iron & Wine
Sheperd's-dog
Flott plata hjá Sam Beam, meiri hljómsveitarfílingur og elektróník en veriđ hefur en kassagítarinn aldrei langt undan. Meiri draumkennd í gangi en fyrr og gríđarlega heilsteypt kvikindi hér á ferđ.

Upphaflegur dómur: 8.0 [Mćspeis]

#8 The Reminder – Feist
feist
Ćtli ţetta sé ekki útvarpsvćnasta platan á listanum ţetta áriđ og gćti flokkast undir FM-popp, ef svo er ţá er ţetta allavega FM-popp af dýrari sortinni. Ţađ er eitthvađ viđ hana Leslie Feist, skelfilega seiđandi og ljúf plata hjá henni sem ég fékk eiginlega ekki nóg af á árinu. Mörg lög á ţessari plötu sem eru orđin klassíkerar.

Upphaflegur dómur: 8.0 [Mćspeis]

#7 Mirrored – Battles
battles
Skelfilega tormeltur en jafnfram stórkostlegur grautur. Ţvílíkar pćlingar, ţeir félagar hafa greinilega legiđ yfir stćrđfrćđi-formúlunum ţví ţćr eru nánast allar ađ ganga upp. Ţađ ţurfti sinn tíma í ađ melta ţessa plötu, ţetta er stórvirki.

Upphaflegur dómur: 8.0 [mćspeis]

#6 Plague park – Handsome Furs
handsome
Ţađ ţarf víst engin rakettuvísindi til ţessa ađ búa til góđa plötu. Gítar, söngur, synthar og trommuheili. Einfalt og hrátt. Gott eintak.

Upphaflegur dómur: 8.0 [Mćspeis]

#5 Neon Bible – Arcade Fire
neonbible300
Ekki auđvelt hlutskipti ađ fylgja eftir “The Funeral” en ţessi plata er gríđarlega heilsteypt, fyrstu fjögur lögin eru frábćr (sem og “No cars go” auđvitađ, restin er góđ. Ein af betri plötum ársins.

Upphaflegur dómur: 8.0 [Mćspeis]

#4 Cease to begin – Band of horses
band-of-horses
Verđur bara betri viđ hverja hlustun, mörg ótrúlega “solid” lög á plötunni. Ég tók ástfóstri viđ ţessa plötu og hún verđskuldar svo sannarlega sćti á topp 5.

Upphaflegur dómur: 8.5 [Mćspeis]

#3 Sound of silver – LCD Soundsystem
lcdsoundsystem_sound_of_silver
Urrandi gott kvikindi sem svei mér ţá inniheldur tvö af betri lögum ársins, “Someone great” og “All my friends”. Hin lögin eru góđ líka, varla veikan blett ađ finna og platan rennur snyrtilega í gegn. Uppgötvun ársins hjá mér allavega.

Upphaflegur dómur: 8.5 [Mćspeis]

#2 Grinderman – Grinderman
CDSTUMM272-300
Seint verđ ég talinn vera Nick Cave-mađur og skal ég fyrstur viđurkenna fákunnáttu mína á sögu hans og tónlist. En ţessi plata Grinderman kom ţvílíkt aftan ađ mér í árinu, ég hreifst af henni viđ fyrstu hlustun, hráleiki og “attitút” sem fćr fólk eins og mig og ţig til ţess ađ míga í sig af geđshrćringu. Klassa skífa.

Upphaflegur dómur: 9.0 [Mćspeis]

#1 Strawberry Jam - Animal Collective
fda839b55ff049abaabbb2095dea75d6_StrawberryJam
Yfirburđa plata ţessa árs, ég talađi um “Pet sounds” okkar tíma ţegar ég ritađi um plötuna fyrr á árinu, ég fer ekkert ofan af ţví. Urrandi sköpunargleđi hjá ţessum frábćru listamönnum. Topp eintak. Besta erlenda plata ársins 2007. Hvernig vćri svo ađ "stríma" snilldinni? Kíktu í tónlistarspilarann hér til hćgri.

Upphaflegur dómur: 9.5 [Mćspeis]


Night falls over Kortedala – Jens Lekman [2007]

JensLekamnNightFallsÉg var ekkert smá hrifinn af plötunni hans frá 2005, “Oh you are so silent Jens”, ţađ var eitthvađ svo ótrúlega ljúft og sannfćrandi viđ ţennan geđţekka unga Svía međ silkimjúku röddina.
Nýja platan er ađ mörgu leyti heilsteyptari en sú fyrri ţó hana vanti viđ fyrstu hlustanir eftirminnilega og afgerandi “hittara”. Ţađ er engu til sparađ, útsetningarnar eru miklar og útpćldar, skemmtileg “sömpl” hér og ţar og textarnir hallćrislega einfaldir en samt eitthvađ svo sannir. Ég sé fyrir mér ađ ţessi plata eigi bara eftir ađ verđa betri ţegar fram líđa stundir, ţađ eru lög á henni sem hafa alla burđi til ţess ađ festast í heilabúi mínu (t.d. "The Opposite of Hallelujah" og "I'm Leaving You Because I Don't Love You"). Fín plata hér á ferđ hjá Jens Lekman.

Hápunktar: "The Opposite of Hallelujah" og "I'm Leaving You Because I Don't Love You" (hlustiđ á lögin hér til hćgri)

Einkunn: 8.0

Vídjó: "Shirin" (af plötunni spilađ lćv á tónleikum)



Leiđrétt 01.01.08: Platan heitir "Night falls over Kortedala" en ekki "Kortedela" eins og rangt var fariđ međ upphaflega. Ţakka góđar ábendingar.

Friend opportunity – Deerhoof [2007]

DeerhoofFriendOpportunityŢađ er tćpt ár síđan ađ ţessi plata kom út og gott ef ţetta er ekki sjöunda breiđskífa sveitarinnar, einhvern veginn hef ég aldrei gefiđ ţeim almennilegan gaum og nennt ađ leggja mig fram viđ ađ hlusta á tónlist ţeirra. Gárungarnir segja ađ ţetta sé međ ţví hlustendavćnna sem ţau hafa sent frá sér en ţó má heyra nokkuđ framúrstefnulegan og tilraunakenndan hljóm. Mér finnst ţess plata nokkuđ skemmtileg og fersk, krúttleg rödd Satomi Matsuzaki gefur ţessu nokkuđ framandi blć og ţađ er einhver undirliggjandi rokk/popp-söngleikjastemning í ţessu hjá ţeim sem virkar ágćtlega. Ţrátt fyrir ţennan ferskleika og skemmilegheit ţá hefur plötunni ekki tekist ađ festa sig í sessi í spilaranum mínum, ţađ er eitthvađ viđ hana sem fćr mig til ţess ađ nenna ekki ađ hlusta mikiđ á hana. Lagiđ “+81” er fantagott lag, eitt af flottari lögum ársins 2007.

Hápunktar:+81” og “The percect me” (hlustiđ á lögin hér til hćgri)

Einkunn: 7.0

Vídjó: "+81" (spilađ lćv í amerísku sjónvarpi)


[mćspeis]


Hissing Fauna, are you the destroyer? – Of Montreal [2007]

HissingfaunaGrípandi melódíur og afar viđkunnalegir kórusar er eitthvađ sem hefur einkennt lög sem slegiđ hafa í gegn. Ţessi breiđskífa Of Montreal-manna er uppfull af ţannig lögum, lögin eru meira en bara grípandi, mörg ţeirra eru bara ţrusugóđ. Kevin Barnes er potturinn og pannan í ţessari sveit og ţar er á ferđinni mjög athyglisverđur tónlistarmađur, hann er međ miklar pćlingar á ţessari konsept-breiđskífu sem fjallar um umbreytingu hans til alter-egósins og glamrokkarans Georgie Fruit.

Ég hef veriđ lengi ađ melta ţessa plötu, renndi henni í gegn í haust og ţá hreif hún mig alls ekki. Platan var sett á ís í nokkuđ langan tíma og nú er hún farin ađ rúlla meira og ég farinn ađ fíla ţetta meir. Ţađ er margt virkilega gott á ţessari plötu, skemmtilegar nálganir, hallćrislega hressandi popp og nett geđveila í gangi í textasmíđunum. Ég er ekki alveg ađ meta ţetta sem meistaraverk né snilld eins og margir vilja meina, ţađ er kannski helst vegna ţess hve seinni partur plötunnar slekkur mikiđ í ţeim stemmara sem fyrri parturinn nćr upp. Ţađ breytir ţó ekki ţeirri stađreynd ađ ţetta er gott stöff, ekki spurning.

Hápunktar:Cato as a pun” og “Heimdalsgate like a promethean curse” (hlustiđ á lögin hér til hćgri)

Einkunn: 8.0

Vídjó: "Suffer for fashion" (myndband viđ opnunarlag plötunnar)


Mugiboogie – Mugison [2007]

247Gullkálfurinn Mugison er hér međ gríđarlega ţroskađa plötu, hún er virkilega vel gerđ og skemmtilega lifandi innspiluđ. Ţađ eru engir aukvisar í kringum óskabarniđ á ţessu sinni og á ţađ stóran ţátt í ţví hversu heilsteypt og góđ ţessi plata er. Mugison er reyndar kominn á ţann stađ á sínum ferli ađ hann getur gert ţađ sem honum sýnist, hann er skrambi sannfćrandi strákurinn og hefur mikinn međbyr á réttum stöđum – hann hefur ţetta í hendi sér. Ég var persónulega ekki ađ fíla Mugsion neitt sérstaklega vel í laptop-fílíngi, ţví er ţessi plata ađ virka mjög vel á mig, ţarna vil ég sjá hann og heyra, međ hörkubandi og gott grúv í gangi. Fjölbreytnin á plötunni er gríđarleg og er ţađ hennar helsti styrkur, t.d. miđađ viđ síđustu plötu (Mugimama) sem var kannski nokkuđ “safe” hvađ varđar heildarsvip í samanburđi viđ ţessa. Ţrusugóđ plata hjá Mugison.

Hápunktar: “The pathetic anthem” og “The Animal”.

Einkunn: 8.5

Vídjó: “The great unrest”

[web]


Mirrored – Battles [2007]

battlesmirroredMikiđ hrikalega hefur veriđ erfitt ađ melta ţetta stórvirki Batlanna, ţetta afsprengi math-rokksins er ekki fyrir hvern sem er og getur veriđ ansi erfitt ađ fikra sig í gegnum stórbrotnar og oft á tíđum taktlausar lagasmíđar drengjanna. Ţví meira sem ég hef hlustađ á ţessa plötu ţví meira kann ég ađ meta hana. Ég ţarf reyndar ađ vera í mjög sérstöku stuđi fyrir ţetta, ţetta er ekki alveg sunnudagskvöldiđ međ kaffibollann, ţessi músík gruflar í hausnum á manni og ţađ tekur á mann ađ međtaka ţessa mögnuđu hljóđbylgjur sem dynja á manni. Ţetta er hljómsveit sem ég hreinlega verđ ađ fá ađ sjá lćv. Lagiđ “Atlas” er af mörgum taliđ vera sterkasta lag plötunnar og er ég nokkuđ sammála, reyndar finnst mér “Tonto” vera mesta snilldin, hressandi grautur ţar á ferđ. Ţessi plata er stórkostleg, ekki fullkomin og alls ekki allra ađ hlusta á.

Hápunktar: “Atlas” og “Tonto

Einkunn: 8,0

Vídjó: “Tonto”


 
[mćspeis]


In rainbows – Radiohead [2007]

In_Rainbows_Official_CoverÉg var mjög hrifinn af sólóstöffi Thom Yorke frá ţví í fyrra (“Eraser”) og ég fílađi líka mjög vel gamla stöffiđ hjá Radiohead, ţađ var minna af nýlega Radiohead efninu sem átti upp á pallborđiđ hjá mér, “Kid A” og “Amnesiac” voru ekki ađ ná mér fyrir utan einstaka lög. Ţessi plata er einhvern veginn gamla góđa Radiohead en samt áriđ 2007, Thom Yorke fćr sína elektrónísku fullnćgingu annars stađar en fćr ţess í stađ ađ láta rokkiđ (međ smá dass af elektróník) leika lausum hala á ný međ félögum sínum. Lagiđ “Nude” er t.d. strax orđiđ ađ Radiohead klassíker, “Reckoner” hljómar kunnuglega (sem sagt Radiohead-legt) og rúsínan í pylsuendanum er hiđ mjög svo áhrifaríka lag “Videotape”. Ţetta er ágćtis plata, rennur smurt í gegn og venst einstaklega vel. Ţađ má svo auđvitađ deila um hvort ađ ţessi stefna sveitarinnar sé rétt, hefđu ţeir átt ađ halda áfram tilraunsstarfsemenni eđa var orđiđ tímabćrt ađ fá gamla góđa Radiohead til baka? Ađ ţessu sinni hallast ég ađ ţví síđast nefnda en vil endilega sjá ţá experimenta meira í framtíđinni.

Hápunktar:Nude” og “Videotape”.

Einkunn: 7.5

Vídjó: “Videotape”



[mćspeis]


Sound of silver – LCD Soundsystem [2007]

LCD_Soundsystem_-_Sound_of_SilverÉg vil byrja á ţví ađ biđja James Murphy afsökunar á ţví ađ dćma hann svona fyrir fram, ég var búinn ađ stimpla tónlist hans sem einhvern töflubryđjandi og svitahnykkjandi viđbjóđ. Ég hef aldrei veriđ mikiđ fyrir dansmúsíkina (reyndar valdi ég “The Warning” međ Hot Chip plötu ársins í fyrra), hingađ til hef ég hlustađ meira á “alvarlegri” músík en ţessi plata kom mér gjörsamlega í opna skjöldu. Urrandi gott kvikindi sem svei mér ţá inniheldur tvö af betri lögum ársins, “Someone great” og “All my friends”. Hin lögin eru góđ líka, varla veikan blett ađ finna og platan rennur snyrtilega í gegn. Ţetta er án efa ein af bestu plötum ársins. James Murphy er greinilega snjall tónlistarmađur, einhvers stađar las ég ađ hann vćri mjög svo “anlógískur”, vill helst hafa allt “ekta” og er lítiđ fyrir “feika” hljóđin sem hann notar. Ţetta gerir pakkann bara enn meira sannfćrandi.

Hápunktar:Someone great” og “All my friends”.

Einkunn: 8.5

Vídjó: "All my friends"


Gleđileg jól

Vil óska lesendum bloggsins gleđilegra jóla og farsćldar á komandi ári.

Jólalög ársins í ár eru án efa međ Stafrćnum Hákon og Unstatuesque (áđur Dialect).

Merry Christmas Mr. Lawrence - Stafrćnn Hákon & Unstatuesque

White Christmas - Stafrćnn Hákon & Unstatuesque (feat. Magnús Freyr)

Virkilega skemmtileg nálgun hjá ţessum frábćrum listamönnum. Hvar man ekki eftir "Hva' ţekkja ţeir ekki jólin?" sem Stafrćnn Hákon og Dialect gerđi hér um áriđ, ţeir sem misstu af ţví stórvirki geta nálgast ţađ hér:

Hva' ţekkja ţeir ekki jólin - Stafrćnn Hákon

[mćspeisiđ hans SH] [SH web]

Dapurt plötuumslag: Sell Sell Sell - David Gray

Sell
Ég hef nú lengi veriđ nokkur ađdáandi David Gray, sérstaklega "early" stöffiđ hans og svo "White Ladder", sem er náttúrulega brakandi gott kaffi. En ţetta plötuumslag, fyrir plötuna hans "Sell sell sell" frá árinu 1996, er gjörsamlega glatađ. Ţarna er David vćntanlega ađ skírskjóta í hiđ erfiđa kapphlaup um hylli neytenda ţegar kemur ađ plötusölu. Ţađ hefđi örugglega veriđ hćgt ađ útfćra ţetta öđruvísi og kannski ekki alveg svona hallćrislega. Hvađ er máliđ međ verđmiđana á "Buddy Holly"-gleraugunum?

Reyndar er eitt nokkuđ gott lag á ţessari plötu, ţađ er "Late night radio". Ţađ er í spilaranum hér til hćgri.

[heimasíđa DG]

Ţetta minnir mig auđvitađ á fleiri döpur plötuumslög, en fyrir áhugasama ţá er ţessi síđa nokkuđ góđ, reyndar miklar öfgar ţar og lítiđ um ţekkta flytjendur. Hvar man t.d. ekki eftir ţessu hrćđilega koveri?
heino

« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Höfundur

My Music
My Music
Bloggað um tónlist.
Sendu mér línu: blogmymusic[at]gmail.com
Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 693

Annađ

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband