Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2007

Feist læv hjá Letterman - nýr síngull frá Band of Horses

Hin huggu- og krúttlega Feist tekur hér lagið "1234" í þætti David Letterman þann 27. ágúst. Lagið er af frábærri plötu hennar "Reminder" (2007) sem ég hvet fólk eindregið til þess að næla sér í.
Glöggir lesendur sjá að með henni á sviði er fríður hópur fólks úr hljómsveitum eins og: Broken Social Scene, The New Pornographers, The National, Grizzly Bear, og Mates of State. Urrandi stuð hjá David Letterman.



1234 - Feist [.]

[Feist á mæspeis] [Feist á jútjúb]

Is there a ghost?
Fyrsti síngullinn af væntanlegri plötu Band of Horses er kominn út. Lagið heitir "Is there a ghost?" og lofar hann mjög góðu.

Is there a ghost? - Band of horses [.]

Platan "Cease to begin" á víst að koma út 9. október næstkomandi. Hrossin hafa þó tilkynnt að þeir ætli að spila nokkur gigg í september í USA og ætla gömlu brýnin í Dinosour Jr. að slást í för með þeim í þennan fimm tónleika túr.

[Band of horses á mæspeis]

Paul semur um ástarlífið

Það er vonandi að Paul nái sér á strik eftir öll leiðindin með Heather Mills. Það eru ófá lögin sem Paul hefur samið í gegnum tíðina er fjalla um ástarsambönd hans. Mér dettur strax í hug Bítlalagið "I´m looking through you" af Rubber Soul.

Lagið fjallar um samband hans við leikkonuna Jane Asher sem var kærasta hans á þeim tíma (1965). Texti lagsins er beinskeittur og lýsir því hvernig hann upplifir þeirra samband. Setningar eins og: 
- "You don´t look different but you have changed"
- "Why, tell me why, did you not treat me right? Love has a nasty habit of disappearing overnight .", gefa skýra mynd á því hvernig staðan var hjá þeim.

Annað lag af sömu plötu, Rubber Soul, "You won´t see me" fjallar einnig um krísuna í sambandi Pauls við Jane. Jane hafði mikið fyrir stafni í leiklistinni og sagan segir að á þessum tíma hafi hún verið í Wales að leika og ekki haft fyrir því að svara símanum þegar kærastinn hringdi í hana:
"When I call you up
Your line's engaged"

Paul vildi að Jane eyddi meiri tíma í þetta samband en það var auðvitað erfitt þegar tvö stór egó, tónlistarmaður og leikkona, leiddu saman hesta sína:
"We have lost the time
that was so hard to find"

Paul og Jane voru saman í ein 5 ár (1963 til 1968) en Jane enn þann dag í dag harðneitar hún að tala um samband sitt við Paul né þann tíma er þau voru saman. Það verður fróðlegt að sjá hvernig Paul reiðir af með nýju kærustunni, sem einmitt er leikkona.

Hlustið á lögin tvö hér í spilaranum til hægri.

You won´t see me, "læv" á tónleikum árið 2004:

mbl.is Ástarlíf McCartneys að glæðast?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýtt og nýlegt

fruit001Hinn geðþekki Beck Hansen var að senda frá sér nýjan síngul þó svo að engar fréttir séu um nýja breiðskífu. Lagið heitir "Timebomb" og er afar hressandi bastarður.

Timebomb - Beck [.]

Josh Ritter sá ég hita upp fyrir Damien Rice á tónleikum í útlandinu fyrir nokkrum árum síðan og þótti mér nokkuð til hans koma. Hef ekki fylgst mikið með kauða síðan en það er víst ný plata á hurðarþrepinu og fyrsta lag hennar mun vera "To the dogs or whoever". Allt í læ bara. Platan mun heita "The Historical Conquests of Josh Ritter" og ku vera fimmta breiðskífa hans.

To the dogs or whoever - Josh Ritter [.]

Fyrsti offisíal síngullinn af væntanlegri breiðskífu Animal Collective er mættur á svæðið og vídjóið er ekkert slor. Lagið heitir "Peacebone" og breiðskífan, sem kemur út 11. september 2007 (úúú!), mun heita "Strawberry Jam".  Það er meira eða minna búið að leka öllu albúminu á netið en strákarnir í AC voru nokkuð klókir í sínum aðgerðum, eins og ég bloggaði um í júlí síðastliðnum. Myndbandið við lagið má sjá hér.

Peacebone - Animal Collective [.]

Þættinum barst bréf fyrir nokkru síðan og var bent á þennan kauða. Jared Von Fleet úr sveitinni Voxtrot á sér gæluverkefni er hann kallar Sparrow House. Á þessu ári hefur hann verið að þruma frá sér EP-plötum og nú síðast EP-plötunni "Falls" og þar er að finna þetta ágæta lag "When I am gone". Elliott Smith, einhver?

When I am gone - Sparrow House [.]

Öll lögin fjögur er hægt að hlusta á í spilaranum hér til hægri.


Eagles með nýtt efni

Gömlu brýnin í Eagles munu gefa út sína fyrstu stúdíóplötu síðan árið 1979 núna í októbermánuði á þessu ári. Tími til kominn myndi einhver segja, tjaaa... ekki hef ég saknað þeirra neitt sérstaklega og af fyrsta síngli plötunnar að dæma þá er ekki von á neitt sérstaklega góðu.

Vídjó við lagið "How long" af væntanlegri plötu Eagles-manna "Long road out of Eden".

Gárungarnir segja að vídjóið sé í svart/hvítu vegna þess hversu gamlir Frey, Henley og félagar séu orðnir - þetta er örugglega ódýrara en slatti af almennilegu make-uppi á þessa ellismelli. Og til þess að hafa eitthvað jákvætt við þessa færslu þá er hér hið ódauðlega "Hotel California", þarna þekki ég ykkur!


Þrjár kántrýskotnar plötur

Hef verið að hlusta mikið á þrjár plötur að undanförnu og allar eiga þær það sameiginlegt að vera kantrýskotnar. Þetta eru nýjustu afurðir Ryan Adams, Cherry Ghost og Iron & Wine.

Easy tiger – Ryan Adams [2007]
Ryan_CoverÞetta er ein af þessum plötum sem heilla mann strax frá fyrstu hlustun, það er einhver stemning þarna sem hrífur mann með sér. Hef ekki gefið Ryan neinn sérstakan gaum í gegnum tíðina, hef heyrt hluta úr plötum og lög hér og þar á ferlinum – þetta er níunda stúdíóplata kappans og sú fyrsta síðan 2005, en það ár gaf hann út hvorki fleiri né færri en þrjár breiðskífur. Platan er góð, stútfull af ljúfum jaðarköntrý-lögum. Mæli klárlega með þessu eintaki.


Hápunktar: “Goodnight Rose”, “Off Broadway” og “Pearls on a string”. (hlusta hér til hægri ->)
Einkunn: 8.0

Fróðleiksmoli: Platan er gefin út af Lost Highway Records en þar eru á mála nöfn eins og Elvis Costello, Eagles, Van Morrison og Willie Nelson.

[myspace] [youtube] – vídjó við lagið “Halloween head”

Thirst for romance – Cherry Ghost [2007]
ThirstforromanceHelstu áhrifavaldar þessarar bresku sveitar eru ekki af verri sortinni: Sparklehorse og Smog. Debjúplata sveitarinnar er gríðarlega viðkunnaleg og þægileg áheyrnar, það er ekkert nýtt svo sem í þessu: áheyrilegt köntrýskotið indírokk. Cherry Ghost hefur fengið ágætis viðbrögð í heimalandinu, platan stökk til að mynda strax í #7 á breska vinsældarlistanum vikuna sem hún kom út. Potturinn og pannan í þessu bandi er Simon nokkur Aldred og þar á ferðinni er nokkuð lunkinn lagasmiður, eins og lögin í spilaranum hér til hægri gefa til kynna. Allt í lagi plata bara.

Hápunktar: “Thirst for romance” og “4AM”. (hlusta hér til hægri ->)
Einkunn: 6.5

Fróðleiksmoli: Jimi Goodwin, söngvari Doves, lemur trommur í laginu “People help the people”.

[myspace] [youtube] – vídjó við lagið “People help the people”

Sheperd’s dog – Iron & Wine [2007]
Sheperd%27s-dogÞriðja breiðskífa Sam Beam, betur þekktur undir nafninu Iron & Wine, er væntanleg í plötuverslanir í lok næsta mánaðar. Ég fékk eintak af plötunni á silfurfati fyrir nokkrum vikum síðan og hef verið að melta plötuna um skeið. Mér finnst önnur breiðskífa kappans (“Our endless numbered days”) vera tært fyrirtak, akústísk og smekklega matreidd. Þessi breiðskífa er aðeins þyngri í vöfum, draumkenndari er kannski rétta orðið, en kemur það síður en svo niður á gæðum. Platan er þeim einstaka eiginleika gædd að vera heilsteypt og renna smurt í gegn án nokkurra hnökra (lesist: án laga sem þarf að “skippa” fram hjá). Góð plata hér á ferð.

Hápunktar: “White tooth man”, “Carousel” og “Boy with a coin”. (hlusta hér til hægri ->)
Einkunn: 8.0

Fróðleiksmoli: Sam Beam er sprenglærður kappi, er með MFA-gráðu (Master of Fine Arts) frá Florida State University Film School.

[myspace] [youtube] – "læv"-upptaka af "Boy with a coin “


Zombies

Tvö af flottari lögum 7. áratugarsins... með drengjunum í Zombies, band fyrir hugsandi menn og konur:

She's not there


Time of the season (orginal lagið en því miður bara eitthvað slædsjóv sem keyrir.... en lagið heyrist)


Og að lokum, smá portrait af Zombies unnið af einhverjum aðdáanda á Youtube, gefur ágætis mynd (og hljóð) af því sem þessi vanmetna sveit gerði hér á árum áður.

Svör við lagabútagetraun

Þetta hafðist fyrir rest - það var þó enginn með þetta allt rétt, allavega ekki í einni bunu. Gengur betur næst. Hér eru svörin.

1. Planet telex - Radiohead


2. A means to an end – Joy Division
Fann ekkert vídjó. En hér geturu nálgast lagið.

3. Last nite - Strokes


4. If I ever feel better - Phoenix


5. Moonlight shadow – Mike Oldfield


6. Lolita - Prince
Fann ekkert vídjó, en hér er lagið.

7. Heaven is a place on earth – Belinda Carlisle


8. Election day - Arcadia


9. 1979 – Smashing Pumpkins


10. Village Green Preservation Society - Kinks


11. Golden skans - Klaxons


12. Keeping the dream alive - Freiheit


13. While my guitar gently weeps - Beatles

Nokkuð merkileg upptaka af þessu lagi: væntanlega á Elton John-tónleikum en þarna eru m.a. Ringo Starr, Eric Clapton og svo auðvitað George Harrison. Ég myndi skjóta á að þetta væri frá 80s, allavega af hárgreiðslu og outfittinu á George að dæma!

14. Live forever - Oasis


15. Dream of sleep - Ghostigital

Þetta er örstutt læv-brot frá því að Ghostigital hitaði upp fyrir Björk í Vancouver núna í vor/sumar. Ef þú vilt heyra lagið í heild sinni, sem ég mæli klárlega með, smelltu þá hér.


Vantar enn tvö lagabrot!!

Ætla ég að reynast sannspár? Það vantar ennþá lagaheiti og flytjanda á brotum númer 2 og 6. Allt annað er komið:

1. Radiohead - Planet Telex
2. --------
3. The Strokes - Last Nite
4. Phoenix - If I ever feel better
5. Mike Oldfield - Moonlight Shadow
6. -------
7. Belinda Carlisle - Heaven is a place on earth
8. Arcadia - Election Day
9. Smashing Pumpkins - 1979
10. Kinks - Village green preservation society
11. Klaxons - Golden Skans
12. (Münchener) Freiheit - Keeping the dream alive
13. The Beatles - While my guitar gently weeps
14. Oasis - Liver Forever
15. Ghostigital - Dream of sleep

Vísbending vegna #2: lagið er frá upphafi 9. áratugsins og með hljómsveit sem dregur nafn sitt frá bók úr seinni heimstyrjöldinni. (nafn hljómsveitarinnar kemur fyrir í bókinni en ekki í titllinum)
Vísbending vegna #6: Þetta lag kom út í fyrra og er að finna á tuttugustu og þriðju breiðskífu listamannsins, platan heitir tölustöfum.

 Látum þetta meltast yfir helgina og sjáum hvað setur.

Tvö góð svona rétt fyrir helgina

Modest Mouse - Missed the boat

Ryan Adams & The Cardinals - Two


Þekkir þú þessi lög?

quiz Jæja, víst að síðasta lagabútagetraun tókst svona vel þá er alveg málið að koma með aðra. Ég hef grun um að þessi sé örlítið erfiðari og ætla að gerast svo frakkur á spá því að enginn nái þessu rétt! (aðeins að ögra ykkur).

Reglurnar eru einfaldar, ég spyr um lagaheiti og flytjanda í öllum bútunum. Þetta eru í allt 15 lagabútar, hver þeirra er nákvæmlega 6 sekúndur að lengd og í flestum tilfellum fann ég stað í laginum þar sem enginn söngur er (bara til þess að gera þetta erfiðara en jafnframt skemmtilegra). Þó læðist inn á milli smá söngur í nokkrum bútum, ekki mikið þó.

Lagabútagrauturinn er í spilaranum hér til hægri og heitir "Getraun-Getraun".

Svarið vinsamlegast í athugasemdakerfið hér fyrir neðan. Endilega svarið þó svo að þið þekkið aðeins nokkra búta, það er gott innlegg í púslið sem á endanum (vonandi) gengur upp.

Góðar stundir.

Kaupþing vs. Landsbankinn

Athyglisvert að sjá þessa "tónleikarimmu" bankanna. Greinilegt er að Kaupþing stílar inn á ríka, metta og flotta liðið (það sama og fer að sjá Stuðmenn og Sálina í Kaupmannahöfn!) á meðan Landsbankinn býður upp á tónlist fyrir alla landsmenn.

Sjáiði bara line-uppið:

Kaupþing, föstudagskvöldið 17. ágúst á Laugardalsvelli
Bubbi Morthens
Stuðmenn
SSSÓL
Björgvin Halldórsson
Garðar Thor Cortes
Todmobile
Nylon
Strákasöngsveitin Luxor
Veislustjóri: Páll Óskar.
Tónlistarlegur ráðgjafi: Einar Bárðar (mitt innskot, en það hlýtur bara að vera!)

Hér geta 5-15 ára og svo 35 ára og eldri skemmt sér konunglega. Ef þú ert hins vegar 15-35 ára þá á þér eflaust eftir að leiðast... nema að þú sért bara kominn til að sýna þig og sjá aðra (Sálin í Köben, anyone?)

Landsbankinn, laugardagskvöldið 18. ágúst á Miklatúni
Ampop
Á móti sól
Eivör ásamt hljómsveit
Ljótu hálfvitarnir
Mannakorn ásamt Ellen
Megas og Senuþjófarnir
Mínus
Pétur Ben
Sprengjuhöllin
Vonbrigði

Þarna ertu með eitthvað fyrir alla, sé reyndar ekkert í fljótu bragði sem myndi virka fyrir þau allra yngstu, jú ætli Magni (Á móti sól) dekki ekki þann hóp. Rás 2 er auðvitað með í þessu og þeir náttúrulega með mikla þekkingu á því hvað sé vinsælt í dag. Spurning hvort að Kaupþing hafi talað við Bylgjuna og spurt þá hvað sé að virka í dag?

Landsbankinn vinnur þessa rimmu með yfirburðum (og þá er aðeins litið á tónlistarlegu hliðina), svo er hins vegar annað mál hvernig mætingin verður. Landsbankinn klárlega með gott forskot vegna Menningarnætur og svo veit maður aldrei hvernig veðrið verður.

En þetta er auðvitað bara mín skoðun og er hún algjörlega gegnumlituð af mínum tónlistarsmekk.
mbl.is Kaupþing heldur tónleika í tilefni af afmæli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

My Music
My Music
Bloggað um tónlist.
Sendu mér línu: blogmymusic[at]gmail.com
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 713

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband