Leita í fréttum mbl.is

Eagles með nýtt efni

Gömlu brýnin í Eagles munu gefa út sína fyrstu stúdíóplötu síðan árið 1979 núna í októbermánuði á þessu ári. Tími til kominn myndi einhver segja, tjaaa... ekki hef ég saknað þeirra neitt sérstaklega og af fyrsta síngli plötunnar að dæma þá er ekki von á neitt sérstaklega góðu.

Vídjó við lagið "How long" af væntanlegri plötu Eagles-manna "Long road out of Eden".

Gárungarnir segja að vídjóið sé í svart/hvítu vegna þess hversu gamlir Frey, Henley og félagar séu orðnir - þetta er örugglega ódýrara en slatti af almennilegu make-uppi á þessa ellismelli. Og til þess að hafa eitthvað jákvætt við þessa færslu þá er hér hið ódauðlega "Hotel California", þarna þekki ég ykkur!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haukur Nikulásson

Þetta er ekta Eagles! Vandað og áferðarfallegt country-pop-rock eins og maður vill hafa þetta. Þessir kallar kunna sína list, en hún er ekki allra. Ég kaupi þessa plötu ef þetta er eðlilegt sýnishorn. Mér sýnist líka að þeir séu komnir til baka í 4 manna uppstillingu. Maður saknar samt alltaf snilldargítarleiks Don Felders.

Hotel California er ekki ekta Eagles þótt það sé eitt allra besta lag poppsögunnar. Það lag er hins vegar slysalega vel heppnuð tilraun til að breyta til!

Ólíkt þér þá fíla ég þetta nýja lag þeirra ágætlega, enda búið að semja það milljón sinnum og þeir flytja það vel! Hvað er rangt við það að vilja borða góða nautasteik oftar en einu sinni? Má það ekki gilda í músík líka að endurtaka leikinn? 

Haukur Nikulásson, 24.8.2007 kl. 11:46

2 Smámynd: Haukur Nikulásson

Ég gleymdi að þakka þér fyrir að benda mér Eagles aðdáandanum á þetta. Takk!

Haukur Nikulásson, 24.8.2007 kl. 11:46

3 Smámynd: My Music

Minnsta mál og takk fyrir athugasemdina. Þú ert greinilega mikill Eagles-maður, ég hef aðeins hlustað á þeirra helstu smelli og þekki því ekki allan pakkann né hef fylgst með þeim frá upphafi.

Fyrir mér eru Eagles fyrst og fremst "Hotel California" og svo lög eins og "Lyin' eyes", "Tequila sunrise", "Take it easy", "Desperado"..... sem sagt þeir smellir sem hafa hljómað á öldum ljósvakans.

"Pointið" í þessari færlsu minni var smá skot á þessi gömlu brýni að þeir skuli ekki koma með nýjan vinkil á þetta eða þá smá krydd í þetta gamla stöff. Og nú er ég dæma allt út frá þessum fyrsta síngli. En þetta er auðvitað bara mín persónulega skoðun.

En ég skil "gamla" Eagles aðdáendur vel að þeir vilji ekki breytingar á því sem virkaði hér áður.

My Music, 27.8.2007 kl. 14:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

My Music
My Music
Bloggað um tónlist.
Sendu mér línu: blogmymusic[at]gmail.com
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 11
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 659

Annað

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband