24.8.2007 | 07:42
Eagles međ nýtt efni
Gömlu brýnin í Eagles munu gefa út sína fyrstu stúdíóplötu síđan áriđ 1979 núna í októbermánuđi á ţessu ári. Tími til kominn myndi einhver segja, tjaaa... ekki hef ég saknađ ţeirra neitt sérstaklega og af fyrsta síngli plötunnar ađ dćma ţá er ekki von á neitt sérstaklega góđu.
Vídjó viđ lagiđ "How long" af vćntanlegri plötu Eagles-manna "Long road out of Eden".
Gárungarnir segja ađ vídjóiđ sé í svart/hvítu vegna ţess hversu gamlir Frey, Henley og félagar séu orđnir - ţetta er örugglega ódýrara en slatti af almennilegu make-uppi á ţessa ellismelli. Og til ţess ađ hafa eitthvađ jákvćtt viđ ţessa fćrslu ţá er hér hiđ ódauđlega "Hotel California", ţarna ţekki ég ykkur!
Tónlist | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (3)
23.8.2007 | 19:52
Ţrjár kántrýskotnar plötur
Hef veriđ ađ hlusta mikiđ á ţrjár plötur ađ undanförnu og allar eiga ţćr ţađ sameiginlegt ađ vera kantrýskotnar. Ţetta eru nýjustu afurđir Ryan Adams, Cherry Ghost og Iron & Wine.
Easy tiger Ryan Adams [2007]
Ţetta er ein af ţessum plötum sem heilla mann strax frá fyrstu hlustun, ţađ er einhver stemning ţarna sem hrífur mann međ sér. Hef ekki gefiđ Ryan neinn sérstakan gaum í gegnum tíđina, hef heyrt hluta úr plötum og lög hér og ţar á ferlinum ţetta er níunda stúdíóplata kappans og sú fyrsta síđan 2005, en ţađ ár gaf hann út hvorki fleiri né fćrri en ţrjár breiđskífur. Platan er góđ, stútfull af ljúfum jađarköntrý-lögum. Mćli klárlega međ ţessu eintaki.
Hápunktar: Goodnight Rose, Off Broadway og Pearls on a string. (hlusta hér til hćgri ->)
Einkunn: 8.0
Fróđleiksmoli: Platan er gefin út af Lost Highway Records en ţar eru á mála nöfn eins og Elvis Costello, Eagles, Van Morrison og Willie Nelson.
[myspace] [youtube] vídjó viđ lagiđ Halloween head
Thirst for romance Cherry Ghost [2007]
Helstu áhrifavaldar ţessarar bresku sveitar eru ekki af verri sortinni: Sparklehorse og Smog. Debjúplata sveitarinnar er gríđarlega viđkunnaleg og ţćgileg áheyrnar, ţađ er ekkert nýtt svo sem í ţessu: áheyrilegt köntrýskotiđ indírokk. Cherry Ghost hefur fengiđ ágćtis viđbrögđ í heimalandinu, platan stökk til ađ mynda strax í #7 á breska vinsćldarlistanum vikuna sem hún kom út. Potturinn og pannan í ţessu bandi er Simon nokkur Aldred og ţar á ferđinni er nokkuđ lunkinn lagasmiđur, eins og lögin í spilaranum hér til hćgri gefa til kynna. Allt í lagi plata bara.
Hápunktar: Thirst for romance og 4AM. (hlusta hér til hćgri ->)
Einkunn: 6.5
Fróđleiksmoli: Jimi Goodwin, söngvari Doves, lemur trommur í laginu People help the people.
[myspace] [youtube] vídjó viđ lagiđ People help the people
Sheperds dog Iron & Wine [2007]
Ţriđja breiđskífa Sam Beam, betur ţekktur undir nafninu Iron & Wine, er vćntanleg í plötuverslanir í lok nćsta mánađar. Ég fékk eintak af plötunni á silfurfati fyrir nokkrum vikum síđan og hef veriđ ađ melta plötuna um skeiđ. Mér finnst önnur breiđskífa kappans (Our endless numbered days) vera tćrt fyrirtak, akústísk og smekklega matreidd. Ţessi breiđskífa er ađeins ţyngri í vöfum, draumkenndari er kannski rétta orđiđ, en kemur ţađ síđur en svo niđur á gćđum. Platan er ţeim einstaka eiginleika gćdd ađ vera heilsteypt og renna smurt í gegn án nokkurra hnökra (lesist: án laga sem ţarf ađ skippa fram hjá). Góđ plata hér á ferđ.
Hápunktar: White tooth man, Carousel og Boy with a coin. (hlusta hér til hćgri ->)
Einkunn: 8.0
Fróđleiksmoli: Sam Beam er sprenglćrđur kappi, er međ MFA-gráđu (Master of Fine Arts) frá Florida State University Film School.
[myspace] [youtube] "lćv"-upptaka af "Boy with a coin
Tónlist | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (1)
16.8.2007 | 10:25
Zombies
She's not there
Time of the season (orginal lagiđ en ţví miđur bara eitthvađ slćdsjóv sem keyrir.... en lagiđ heyrist)
Og ađ lokum, smá portrait af Zombies unniđ af einhverjum ađdáanda á Youtube, gefur ágćtis mynd (og hljóđ) af ţví sem ţessi vanmetna sveit gerđi hér á árum áđur.
Tónlist | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)
13.8.2007 | 10:29
Svör viđ lagabútagetraun
Ţetta hafđist fyrir rest - ţađ var ţó enginn međ ţetta allt rétt, allavega ekki í einni bunu. Gengur betur nćst. Hér eru svörin.
1. Planet telex - Radiohead
2. A means to an end Joy Division
Fann ekkert vídjó. En hér geturu nálgast lagiđ.
3. Last nite - Strokes
4. If I ever feel better - Phoenix
5. Moonlight shadow Mike Oldfield
6. Lolita - Prince
Fann ekkert vídjó, en hér er lagiđ.
7. Heaven is a place on earth Belinda Carlisle
8. Election day - Arcadia
9. 1979 Smashing Pumpkins
10. Village Green Preservation Society - Kinks
11. Golden skans - Klaxons
12. Keeping the dream alive - Freiheit
13. While my guitar gently weeps - Beatles
Nokkuđ merkileg upptaka af ţessu lagi: vćntanlega á Elton John-tónleikum en ţarna eru m.a. Ringo Starr, Eric Clapton og svo auđvitađ George Harrison. Ég myndi skjóta á ađ ţetta vćri frá 80s, allavega af hárgreiđslu og outfittinu á George ađ dćma!
14. Live forever - Oasis
15. Dream of sleep - Ghostigital
Ţetta er örstutt lćv-brot frá ţví ađ Ghostigital hitađi upp fyrir Björk í Vancouver núna í vor/sumar. Ef ţú vilt heyra lagiđ í heild sinni, sem ég mćli klárlega međ, smelltu ţá hér.
Tónlist | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
10.8.2007 | 09:58
Vantar enn tvö lagabrot!!
Ćtla ég ađ reynast sannspár? Ţađ vantar ennţá lagaheiti og flytjanda á brotum númer 2 og 6. Allt annađ er komiđ:
1. Radiohead - Planet Telex
2. --------
3. The Strokes - Last Nite
4. Phoenix - If I ever feel better
5. Mike Oldfield - Moonlight Shadow
6. -------
7. Belinda Carlisle - Heaven is a place on earth
8. Arcadia - Election Day
9. Smashing Pumpkins - 1979
10. Kinks - Village green preservation society
11. Klaxons - Golden Skans
12. (Münchener) Freiheit - Keeping the dream alive
13. The Beatles - While my guitar gently weeps
14. Oasis - Liver Forever
15. Ghostigital - Dream of sleep
Vísbending vegna #2: lagiđ er frá upphafi 9. áratugsins og međ hljómsveit sem dregur nafn sitt frá bók úr seinni heimstyrjöldinni. (nafn hljómsveitarinnar kemur fyrir í bókinni en ekki í titllinum)
Vísbending vegna #6: Ţetta lag kom út í fyrra og er ađ finna á tuttugustu og ţriđju breiđskífu listamannsins, platan heitir tölustöfum.
Látum ţetta meltast yfir helgina og sjáum hvađ setur.
Tvö góđ svona rétt fyrir helgina
Modest Mouse - Missed the boat
Ryan Adams & The Cardinals - Two
Tónlist | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)
7.8.2007 | 09:24
Ţekkir ţú ţessi lög?
Reglurnar eru einfaldar, ég spyr um lagaheiti og flytjanda í öllum bútunum. Ţetta eru í allt 15 lagabútar, hver ţeirra er nákvćmlega 6 sekúndur ađ lengd og í flestum tilfellum fann ég stađ í laginum ţar sem enginn söngur er (bara til ţess ađ gera ţetta erfiđara en jafnframt skemmtilegra). Ţó lćđist inn á milli smá söngur í nokkrum bútum, ekki mikiđ ţó.
Lagabútagrauturinn er í spilaranum hér til hćgri og heitir "Getraun-Getraun".
Svariđ vinsamlegast í athugasemdakerfiđ hér fyrir neđan. Endilega svariđ ţó svo ađ ţiđ ţekkiđ ađeins nokkra búta, ţađ er gott innlegg í púsliđ sem á endanum (vonandi) gengur upp.
Góđar stundir.
Tónlist | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (9)
3.8.2007 | 14:43
Kaupţing vs. Landsbankinn
Sjáiđi bara line-uppiđ:
Kaupţing, föstudagskvöldiđ 17. ágúst á Laugardalsvelli
Bubbi Morthens
Stuđmenn
SSSÓL
Björgvin Halldórsson
Garđar Thor Cortes
Todmobile
Nylon
Strákasöngsveitin Luxor
Veislustjóri: Páll Óskar.
Tónlistarlegur ráđgjafi: Einar Bárđar (mitt innskot, en ţađ hlýtur bara ađ vera!)
Hér geta 5-15 ára og svo 35 ára og eldri skemmt sér konunglega. Ef ţú ert hins vegar 15-35 ára ţá á ţér eflaust eftir ađ leiđast... nema ađ ţú sért bara kominn til ađ sýna ţig og sjá ađra (Sálin í Köben, anyone?)
Landsbankinn, laugardagskvöldiđ 18. ágúst á Miklatúni
Ampop
Á móti sól
Eivör ásamt hljómsveit
Ljótu hálfvitarnir
Mannakorn ásamt Ellen
Megas og Senuţjófarnir
Mínus
Pétur Ben
Sprengjuhöllin
Vonbrigđi
Ţarna ertu međ eitthvađ fyrir alla, sé reyndar ekkert í fljótu bragđi sem myndi virka fyrir ţau allra yngstu, jú ćtli Magni (Á móti sól) dekki ekki ţann hóp. Rás 2 er auđvitađ međ í ţessu og ţeir náttúrulega međ mikla ţekkingu á ţví hvađ sé vinsćlt í dag. Spurning hvort ađ Kaupţing hafi talađ viđ Bylgjuna og spurt ţá hvađ sé ađ virka í dag?
Landsbankinn vinnur ţessa rimmu međ yfirburđum (og ţá er ađeins litiđ á tónlistarlegu hliđina), svo er hins vegar annađ mál hvernig mćtingin verđur. Landsbankinn klárlega međ gott forskot vegna Menningarnćtur og svo veit mađur aldrei hvernig veđriđ verđur.
En ţetta er auđvitađ bara mín skođun og er hún algjörlega gegnumlituđ af mínum tónlistarsmekk.
Kaupţing heldur tónleika í tilefni af afmćli | |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Tónlist | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)
3.8.2007 | 12:43
Diskóhiti
Lagiđ sem ég heyrđi heitir "Disco heat" og finnst mér grúviđ í ţví lagi alveg hrikalega grípandi. Hlustađ á lagiđ hér til hćgri -->
Nú er bara ađ nćla sér í plötuna, en hún kom út um miđjan júní á ţessu ári. Calvin ţessi er Skoti, fćddur í Dumfries í Skotlandi en hefur búiđ í Lundúnum lengi vel. Eins og svo margir ađrir var ađ hann búa til tónlist inni í svefniherbergi međ misjöfnum árangri. Hann er einn af ţeim sem uppgötvuđust í gegnum myspace (Lily Allen, Arctic Monkeys....), en EMI plöturisinn nćldi í kappann í fyrra, ţá var hann ađ vinna viđ ađ rađa í hillur í Marks & Spencer.
Stćrsti "hittarinn" hans er án efa "Acceptable in the 80s" (hlustađu hér til hćgri -->) sem er mjög lýsandi fyrir tónlistarstefnu Harris, en ţetta er elektrómúsík međ mikilli skírskotun í ţann ágćta áratug, 80s. Gríđarlega danshvetjandi tónlist hér á ferđ.
Myndband viđ lagiđ "Acceptable in the 80s".
Calvin Harris - Myspace
Calvin Harris - Official
Calvin Harris - Youtube
Tónlist | Breytt s.d. kl. 20:31 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (1)
2.8.2007 | 15:16
Í hnotskurn: tvćr íslenskar plötur
Kominn tími til ađ hlusta á íslenska tónlist. Hef veriđ ađ rúllu nýjum plötum međ Stafrćnum Hákon og Amiinu í gegn upp á síđkastiđ.
Í hnotskurn: Gummi Stafrćnn Hákon [2007]
Fimmta breiđskífa Stafrćns Hákons (Ólafs Joshepssonar) kom út fyrr í sumar og marka ákveđin tímamót hjá honum. Ţetta er í fyrsta sinn sem ađ ţađ er sungiđ af einhverju ráđi í lögum hans, tónlist hans hefur hingađ til veriđ instrúmental. Tími til kominn myndi einhver segja og ađrir kannski svartsýnir á ţađ hvernig ţessi kokteill yrđi. Af níu lögum ţá eru 6 međ söngi en restin (ţrjú lög) upp á gamla góđa Hákons mátann.
Platan sem heild er góđ, inná milli eru nokkrar virkilega góđar lagasmíđar (t.d. Svefn, Rjúpa og Thurr Thurr) en svo eru líka einstaka lög sem skilja lítiđ sem ekkert eftir sig (t.d. hiđ 10 mínútna langa Kvef). Ađ mínum dómi er ţetta rökrétt ákvörđun hjá Hákon ađ krydda gítarsveimiđ sitt međ söng og finnst mér honum takast vel upp á Gumma. Ađdáunarvert hvernig honum tekst ađ láta sönginn falla vel inní lögin í stađ ţess ađ söngurinn leiđi eins og venja er, ţađ finnst mér koma vel út. Gott eintak hér á ferđ.
Hápunktar: Svefn og Rjupa. (hlustađu á lögin hér til hćgri-->)
Einkunn: 8.0
Fróđleiksmoli: Stafrćnn Hákon spilar ásamt hljómsveit á nćstu Airwaves-hátíđ. Kominn tími til!
[myspace] [youtube] lagiđ Eder, af plötunni Ventill/Poki, spilađ lćv í Birmingham áriđ 2004
Í hnotskurn: Kurr Amiina [2007]
Krúttpjásurnar úr Amiinu komu međ sína fyrstu breiđskífu á ţessu ári og ber hún nafniđ Kurr. Eftir nokkurra ára bakcup fyrir Sigur Rós var kominn tími til ađ ţessar hćfileikaríku stúlkur létu ljós sitt skína og skín ţađ ljós nokkuđ skćrt á debjúplötunni. Ég ćtla ađ sleppa klisjunni um íslenska náttúru, álfa og huldufólk, enda er ţađ ekki ţađ sem fer í gegnum hugann ţegar ţessi plata rúllar. Ţađ er einhver ólýsanleg ró og yfirvegun sem ţyrmist yfir mann á ţessari plötu, hvert lag hefur sína melankólísku stemningu reyndar ţegar síga fer á seinni hlutann ţá fer ţessi ró ađ breytast í ţreytu og kannski löngun í ađ eitthvađ komi manni á óvart, ţví helsti ókostur plötunnar er hvađ lögin eru fyrirsjáanleg. Heilt yfir er ţetta fínasta frumraun.
Hápunktar: Rugla og Seoul (hlustađu á lögin hér til hćgri-->)
Einkunn: 7.0
Fróđleiksmoli: Frćđstu meira um stúlkurnar í 9 mínútna myndbandi um kvartetttinn og nýju plötunna ţeirra, hér.
[myspace] [youtube] Seoul lćv í íslensku sjónvarpi
Tónlist | Breytt s.d. kl. 15:18 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
1.8.2007 | 07:12
Daft Punk ađ stela frá Apparat Organ Quartet?
Ég var ađ skrolla í gegnum Pitchforkmedia um daginn og rakst á ţessa mynd af franska dúettnum Daft Punk. Ţessi mynd er tekin á tónleikum ţeirra í Seattle í Bandaríkjunum ţann 28. júlí síđastliđinn.
Mér fannst ţetta merki ţeirra (ţađ sem ţeir gera međ höndunum) vera mjög kunnuglegt og rámađi í ađ hafa séđ ţetta gert áđur á tónleikum. Jú, gott ef ađ íslensku Apparat Organ Quartet vćru ekki vanir ađ gera ţetta á tónleikum sínum. Ég hef séđ ţá nokkrum sinnum lćv og voru međlimir sveitarinnar duglegir ađ gefa ţetta merki á milli laga.
Mér tókst ađ finna mynd af Apparat gera ţetta á tónleikum, hér er mynd af Apparat á Airwaves í október áriđ 2006. Ţar má sjá Úlf Eldjárn gera ţetta sama merki.
Ekki veit ég hvađ meiningin međ ţessu merki er, á ţetta ađ vera ţríhyrningur, tígull eđa hjarta? Skiptir kannski ekki máli, en ţađ athyglisverđa er hvor sveitin var á undan ađ nota ţetta á tónleikum? Hafa Daft Punk séđ Apparat á tónleikum? Eđa öfugt?
"Around the world" međ Daft Punk
"Romantika" međ Apparat Organ Quartet
Ný plata vćntanleg međ Apparat
Heyrst hefur ađ Apparat-menn hafi lokiđ innspilun á nýrri breiđskífu og eftirvinnsla sé í gangi ţessa dagana. Ćtli ţeir stefni ekki á ađ koma henni út fyrir jólin? Ţađ er óhćtt ađ segja ađ ţessari breiđskífu hafi veriđ beđiđ međ mikilli eftirvćntingu, enda hefur Apparat veriđ ca. 5 ár ađ fylgja debjú-plötunni eftir. Sú kom út áriđ 2002 en Apparat var stofnuđ áriđ 1999 ţá sem eitt af tilraunaverkefnum Tilraunaeldhússins (Kitchen Motors). Ţađ tók ca. 3 ár ađ gera ţá plötu.
Eina lagiđ af nýju plötunni sem fengiđ hefur opinbera spilun er "Konami" en ţađ var flutt í Kastljósinu á RÚV í lok janúar á ţessu ári.
Á mćspeisi sveitarinnar er lítiđ gefiđ upp hvađ varđar nýju plötuna en ţar má sjá ađ ţeir spila í Gent í Belgíu í september. Einnig heyrđi ég af ţví ađ ţeir munu spila á tónlistarhátíđinni "Reykjavik to Rotterdam" í nóvember, ásamt fjöldanum öllum af íslenskum hljómsveitum.
Tónlist | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annađ
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar