Leita í fréttum mbl.is

Daft Punk að stela frá Apparat Organ Quartet?

Ég var að skrolla í gegnum Pitchforkmedia um daginn og rakst á þessa mynd af franska dúettnum Daft Punk. Þessi mynd er tekin á tónleikum þeirra í Seattle í Bandaríkjunum þann 28. júlí síðastliðinn.
34375.daftpunk-campbell6

Mér fannst þetta merki þeirra (það sem þeir gera með höndunum) vera mjög kunnuglegt og rámaði í að hafa séð þetta gert áður á tónleikum. Jú, gott ef að íslensku Apparat Organ Quartet væru ekki vanir að gera þetta á tónleikum sínum. Ég hef séð þá nokkrum sinnum læv og voru meðlimir sveitarinnar duglegir að gefa þetta merki á milli laga.

Mér tókst að finna mynd af Apparat gera þetta á tónleikum, hér er mynd af Apparat á Airwaves í október árið 2006. Þar má sjá Úlf Eldjárn gera þetta sama merki.
295706859_31ab26574b_o

Ekki veit ég hvað meiningin með þessu merki er, á þetta að vera þríhyrningur, tígull eða hjarta? Skiptir kannski ekki máli, en það athyglisverða er hvor sveitin var á undan að nota þetta á tónleikum? Hafa Daft Punk séð Apparat á tónleikum? Eða öfugt?

"Around the world" með Daft Punk


"Romantika" með Apparat Organ Quartet

Ný plata væntanleg með Apparat
Heyrst hefur að Apparat-menn hafi lokið innspilun á nýrri breiðskífu og eftirvinnsla sé í gangi þessa dagana. Ætli þeir stefni ekki á að koma henni út fyrir jólin? Það er óhætt að segja að þessari breiðskífu hafi verið beðið með mikilli eftirvæntingu, enda hefur Apparat verið ca. 5 ár að fylgja debjú-plötunni eftir. Sú kom út árið 2002 en Apparat var stofnuð árið 1999 þá sem eitt af tilraunaverkefnum Tilraunaeldhússins (Kitchen Motors). Það tók ca. 3 ár að gera þá plötu.

Eina lagið af nýju plötunni sem fengið hefur opinbera spilun er "Konami" en það var flutt í Kastljósinu á RÚV í lok janúar á þessu ári.



Á mæspeisi sveitarinnar er lítið gefið upp hvað varðar nýju plötuna en þar má sjá að þeir spila í Gent í Belgíu í september. Einnig heyrði ég af því að þeir munu spila á tónlistarhátíðinni "Reykjavik to Rotterdam" í nóvember, ásamt fjöldanum öllum af íslenskum hljómsveitum.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingi Björn Sigurðsson

Spennandi tónleikar , Reykjavik to Rotterdam,... Gaman að sjá Ham er að fara spila aftur á erlendri grundu

Ingi Björn Sigurðsson, 1.8.2007 kl. 10:47

2 identicon

Mér skilst að rapparinn góðkunni Jay-z leggi það í vana sinn að gera þetta sama merki með höndunum.

Albert (IP-tala skráð) 1.8.2007 kl. 13:35

3 identicon

Goldie gerði þetta á tónleiknum sínum, þetta er eitthvað raftónlistarsimbol.

Bjögg (IP-tala skráð) 1.8.2007 kl. 17:56

4 identicon

Kanye West gerði þetta sama merki á North Sea Jazz Festival í fyrra. Oftar en einu sinni. En Reykjavík to Rotterdam er pottþétt hátíð. Mætti síðast og læt mig ekki vanta í ár.

Árni (IP-tala skráð) 1.8.2007 kl. 20:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

My Music
My Music
Bloggað um tónlist.
Sendu mér línu: blogmymusic[at]gmail.com
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 712

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband