Leita í fréttum mbl.is

Hissing Fauna, are you the destroyer? – Of Montreal [2007]

HissingfaunaGrípandi melódíur og afar viðkunnalegir kórusar er eitthvað sem hefur einkennt lög sem slegið hafa í gegn. Þessi breiðskífa Of Montreal-manna er uppfull af þannig lögum, lögin eru meira en bara grípandi, mörg þeirra eru bara þrusugóð. Kevin Barnes er potturinn og pannan í þessari sveit og þar er á ferðinni mjög athyglisverður tónlistarmaður, hann er með miklar pælingar á þessari konsept-breiðskífu sem fjallar um umbreytingu hans til alter-egósins og glamrokkarans Georgie Fruit.

Ég hef verið lengi að melta þessa plötu, renndi henni í gegn í haust og þá hreif hún mig alls ekki. Platan var sett á ís í nokkuð langan tíma og nú er hún farin að rúlla meira og ég farinn að fíla þetta meir. Það er margt virkilega gott á þessari plötu, skemmtilegar nálganir, hallærislega hressandi popp og nett geðveila í gangi í textasmíðunum. Ég er ekki alveg að meta þetta sem meistaraverk né snilld eins og margir vilja meina, það er kannski helst vegna þess hve seinni partur plötunnar slekkur mikið í þeim stemmara sem fyrri parturinn nær upp. Það breytir þó ekki þeirri staðreynd að þetta er gott stöff, ekki spurning.

Hápunktar:Cato as a pun” og “Heimdalsgate like a promethean curse” (hlustið á lögin hér til hægri)

Einkunn: 8.0

Vídjó: "Suffer for fashion" (myndband við opnunarlag plötunnar)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

My Music
My Music
Bloggað um tónlist.
Sendu mér línu: blogmymusic[at]gmail.com
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband