29.11.2007 | 21:23
Flying Cup Club – Beirut [2007]
Það er eitthvað við þennan kauða, Zach Condon, sem ég á ótrúlega erfitt með að lýsa með orðum hvað er. Gamlar klysjur eins og sannfærandi, einlægt, trúverðugt og ekta koma upp í hugann en samt eru þetta ekki nógu sterk orð til þess að lýsa því andrúmslofti sem hann nær að skapa á plötum sínum. Það hafa margir spekúlantarnir reynt að skilgreina þessa músík og setja hana í bás, það finnst mér einnig erfitt að gera. Mitt boð væri sígauna-indí, einfalt og gott, en rúmar samt ekki allt það sem Beirut stendur fyrir.
Þá að þessari plötu, Flying cup club. Hún hitti ekki alveg jafn mikið í mark við fyrstu hlustun eins og debjú platan frá því í fyrra, Gulag Orkestar en það sem nýja platan hefur fram yfir þá gömlu er heildarsvipur, hún er þroskaðri og flóvið er betra og einhvern veginn eðlilegra. Reyndar finnst mér hún dala óþarflega mikið í restina, síðustu lögin eru ekki nógu sterk. Það eru skemmtilega frönsk áhrif á þessari plötu, Condon hefur sjálfur nefnt Jacques Brel sem áhrifavald, svo má heyra franskt horn í þó nokkrum lögum. Það var mikið hæp í kringum Beirut í fyrra vegna debjúplötunnar, menn spurðu sjálfa sig hvort að þætti væri nú ekki bara einhver bóla, o nei, hann Zach hefur fest sig í sessi sem virkilega snjall lagasmiður og ekki síst útsetjari. Fínt kaffi hér á ferð.
Hápunktar: Nantes, Sunday smile og Cliquot.
Einkunn: 7.5
Vídjó: Nantes, spilað læv utan dyra fyrir Blogotheque Take away show.
[mæspeis]
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.