Leita í fréttum mbl.is

Nýtt myndband með Modest Mouse

Gömlu refirnir í Modest Mouse voru að fleygja frá sér myndbandi við lagið "Fly in a jar" af plötunni "We were dead before the ship even sank" sem kom út í fyrra (2007). Þetta er hressandi "animerað" myndband með dass af húmori. Gott lag af ágætri plötu.



Myndbandið gerðu The Saline Project, en það er kollektíva sem hefur m.a. gert myndbönd fyir Eminem, Cure og Gwen Stefani, sem og unnið eitthvað við auglýsinga- og sjónvarpsgerð. Þekki þetta ekki nánar.

Skv. mæspeisi MM þá eru þeir að túra Ástralíu, taka svo smá Asíupakka og því næst túra þeir heimalandið í sumar. Ólíklegt þykir að þeir spili á Hróarskeldu-hátíðinni því þeir eru bókaðir 4. júlí á Rothbury-hátíðinni í Michigan, en sú hátíð fer einmitt fram sömu daga og sú danska, 3.-6. júlí.

"Lænuppið" á þessari Rothbury-hátíð er nokkuð athyglisvert, "heddlænin" eru Dave Matthews band og John Mayer, frekar óspennandi, en svo eru að finna nokkur athyglisverð nöfn inn á milli, t.d. Of Montreal, Ray Lamontagne, Gogol Bordello, Dresden Dolls, Gomez, Zappa plays Zappa og Jakob Dylan and the gold mountain rebels (eru Wallflowers hættir þá eða??). Ekki svo spennandi að maður ætli að æða þarna út eftir.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

My Music
My Music
Bloggað um tónlist.
Sendu mér línu: blogmymusic[at]gmail.com
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband