Leita í fréttum mbl.is

Made in the dark – Hot Chip [2008]

1197442957_23520hot_chipmade_in_the_darkÞað er óhætt að segja að nýjasta plata Hot Chip-flokksins sé stílbragðahrærigrautur af dýrari sortinni. Við fyrstu hlustanir þá var ég ekki á því að hún væri jafn sterk og góð og “The Warning” (frá árinu 2006) en eftir því sem ég hlusta meira þá verður hún bara betri og betri. Platan er rólegri en ég bjóst við, það er þó nokkuð af ljúfum ballöðum (og enn finnst mér gæta McCartney áhrifa eins og ég bloggaði um í jan 2007), á plötunni eru nokkur mjög sterk lög (sjá “lög af plötunni sem vert er að hlusta á”) en einhvern veginn átti ég von á fleiri hressum “dansgólfssmellum” á borð við “Over and over” (af “The Warning”) og svo “Hold on” (af “Made in the dark”). Ekki það að ég hafi orðið fyrir vonbrigðum með að það séu færri hressir smellir en ég bjóst við, fjarri lagi, fyrir vikið finnst mér “konseptið” (heildarmyndin) ganga gríðarlega vel upp. Góð skífa hér á ferð. Heilt yfir er þetta fínt eintak.

Ég mæli eindregið með þessari plötu!

Lög af plötunni sem vert er að hlusta á:Out at the pictures”, “Ready for the floor”, “We´re looking for a lot of love” og “One pure thought”. (UPPFÆRT: Lögin er í spilaranum hér til hægri!)

Vídjó: “Hold on” var fyrsti síngullinn sem kom út af þessari plötu, hressandi og mjaðmahnykkja-hvetjandi smellur á ferðinni, en hér má sjá það spilað akústískt á útvarpsstöðinni “Top shelf radio”.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vá!!!! Takk fyrir, ætla svoleiðis að tékka á þessari plötu... :o) Sá þá spila á Glastonbury hátíðinni (því miður í gegnum sjónvarp!!!) og gjörsamlega kolféll fyrir þeim! Þeir voru hreint út sagt truflaðir á sviði! Sérstaklega minnisstætt þegar þeir tóku til dæmis "boy from school".... Er þvílíkt fallin fyrir laginu We´re looking for a lot of love! Þannig að takk takk takk :)

Kær kveðja frá eyjum, Kristín Ósk  

Kristín Ósk Óskarsdóttir (IP-tala skráð) 17.3.2008 kl. 03:40

2 Smámynd: My Music

Ekki málið. Hot Chip eru hreinlega bara dúndur hljómsveit, eru með þrjár fínar plötur á ferilskránni og inn á milli eru algjörar perlur eins og t.d. "And I was a boy from school" og "We´re looking for a lot of love". Mæli með nýju plötunni.

My Music, 20.3.2008 kl. 09:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

My Music
My Music
Bloggað um tónlist.
Sendu mér línu: blogmymusic[at]gmail.com
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 639

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband