Leita í fréttum mbl.is

Night falls over Kortedala – Jens Lekman [2007]

JensLekamnNightFallsÉg var ekkert smá hrifinn af plötunni hans frá 2005, “Oh you are so silent Jens”, það var eitthvað svo ótrúlega ljúft og sannfærandi við þennan geðþekka unga Svía með silkimjúku röddina.
Nýja platan er að mörgu leyti heilsteyptari en sú fyrri þó hana vanti við fyrstu hlustanir eftirminnilega og afgerandi “hittara”. Það er engu til sparað, útsetningarnar eru miklar og útpældar, skemmtileg “sömpl” hér og þar og textarnir hallærislega einfaldir en samt eitthvað svo sannir. Ég sé fyrir mér að þessi plata eigi bara eftir að verða betri þegar fram líða stundir, það eru lög á henni sem hafa alla burði til þess að festast í heilabúi mínu (t.d. "The Opposite of Hallelujah" og "I'm Leaving You Because I Don't Love You"). Fín plata hér á ferð hjá Jens Lekman.

Hápunktar: "The Opposite of Hallelujah" og "I'm Leaving You Because I Don't Love You" (hlustið á lögin hér til hægri)

Einkunn: 8.0

Vídjó: "Shirin" (af plötunni spilað læv á tónleikum)



Leiðrétt 01.01.08: Platan heitir "Night falls over Kortedala" en ekki "Kortedela" eins og rangt var farið með upphaflega. Þakka góðar ábendingar.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er þetta ekki Kortedala??

kristján (IP-tala skráð) 31.12.2007 kl. 22:02

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég hjó líka eftir stafsetningunni á Kortedala.  Úthverfi í Gautaborg.  Góð tónlist annars og takk fyrir mig.

Jenný Anna Baldursdóttir, 1.1.2008 kl. 09:39

3 Smámynd: My Music

Rétt hjá ykkur, takk fyrir ábendingarnar.

My Music, 1.1.2008 kl. 12:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

My Music
My Music
Bloggað um tónlist.
Sendu mér línu: blogmymusic[at]gmail.com
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 679

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband