Leita í fréttum mbl.is

Mirrored – Battles [2007]

battlesmirroredMikið hrikalega hefur verið erfitt að melta þetta stórvirki Batlanna, þetta afsprengi math-rokksins er ekki fyrir hvern sem er og getur verið ansi erfitt að fikra sig í gegnum stórbrotnar og oft á tíðum taktlausar lagasmíðar drengjanna. Því meira sem ég hef hlustað á þessa plötu því meira kann ég að meta hana. Ég þarf reyndar að vera í mjög sérstöku stuði fyrir þetta, þetta er ekki alveg sunnudagskvöldið með kaffibollann, þessi músík gruflar í hausnum á manni og það tekur á mann að meðtaka þessa mögnuðu hljóðbylgjur sem dynja á manni. Þetta er hljómsveit sem ég hreinlega verð að fá að sjá læv. Lagið “Atlas” er af mörgum talið vera sterkasta lag plötunnar og er ég nokkuð sammála, reyndar finnst mér “Tonto” vera mesta snilldin, hressandi grautur þar á ferð. Þessi plata er stórkostleg, ekki fullkomin og alls ekki allra að hlusta á.

Hápunktar: “Atlas” og “Tonto

Einkunn: 8,0

Vídjó: “Tonto”


 
[mæspeis]


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

My Music
My Music
Bloggað um tónlist.
Sendu mér línu: blogmymusic[at]gmail.com
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband