2.5.2007 | 22:32
Handsome Furs
Í lok þessa mánaðar kemur út platan Plague Park með kanadíska dúettnum Handsome Furs. Ég komst yfir tvö lög með þeim nú á dögunum og verð að játa að ég bíð mjög spenntur eftir frumrauninni.
Þessi dúett er skipaður kærustuparinu Dan Broeckner og Alexei Perry. Dan þessi er kannski þekktari fyrir störf sín í hljómsveitinni Wolf Parade, en þar syngur hann, spilar á gítar og semur mikið af efni þeirra (jafnt við Spencer Krug). Wolf Parade kom sterk inn árið 2005 með fína plötu: Apologies to the Queen Mary. Meðlimir Wolf Parade hafa verið duglegir að skapa sér hliðarverkefni, t.d. hefur Spencer Krug (söngvari, hljómborðsleikari og lagahöfundur) verið iðinn með Swan Lake og Sunset Rubdown.
Plata Handsome Furs kemur út 22. maí og þessi tvö lög (sem hægt er að hlusta á hér til hægri) eru auðvitað á henni. Upphafslag plötunnar What we had er suddalega skítugur, hrár og dimmur slagari, frábært lag þar á ferðinni. Lagið Snakes on the ladder er öllu bjartara í sér, þó skammdegið sé aldrei langt undan.
Handsome Furs eru á samning hjá Sub Pop, en sá leibell er gerður út frá Seattle og er kannski hvað frægastur fyrir að hafa gefið út Nirvana og Soundgarden þegar þær sveitir voru að stíga sín fyrstu skref á grunge-senunni. Í dag er Sub Pop með nöfn eins og Band of horses, Wolf Parade, Low, CSS, Iron & Wine og Sleater-Kinney á sinni skrá, bara til að nefna nokkur nöfn.
[Myspace] [Heimasíða Sub Pop] [Wolf Parade á myspace]
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.4.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tónlistarspilari
Af mbl.is
Innlent
- Flæðir enn í kvikuganginn úr Svartsengi
- Tekinn með hálft kíló innvortis
- Óska eftir gögnum frá forsætisráðuneytinu
- Rannsókn málsins ekki breyst
- Gæti leitt til eldgoss við Reykjanestá
- Hótaði eftirlitsmanni ofbeldi
- Almannavarnastig fært af neyðarstigi á hættustig
- Aðalmeðferð hafin í menningarnæturmálinu
- Viðkvæmum persónuupplýsingum ljósmæðra dreift
- Rafrettur hafa áhrif á lungu, hjarta og heila
Erlent
- Risastór vettvangur fyrir barnaníðsefni leystur upp
- Heathrow fékk aðvörun nokkrum dögum fyrir lokun
- Finnar vilja út úr jarðsprengjubanni
- Þúsundir án rafmagns
- Lífstíð fyrir víg raunveruleikastjörnu
- Frelsisdagur Trumps runninn upp
- Björguðu manni úr rústum fimm dögum eftir stóra skjálftann
- Krefst dauðarefsingar yfir Mangione
- Beðið í örvæntingu eftir fundinum í Rósagarðinum
- Rubio og Rasmussen funda í vikunni
Íþróttir
- Gylfi hlaut yfirburðarkosningu
- Arsenal hefur viðræður við Evrópumeistarann
- Tíunda mark Norðmannsins laglegt (myndskeið)
- Víkingum spáð meistaratitlinum
- Tilbúin í sterkari deild
- Við ætlum að reyna að vinna ensku úrvalsdeildina
- Fimm leikir og fimm ára samningur
- Ég hefði ekki getað lokað hana inni
- Hrósaði stjörnunni í hástert
- Glæsimark Davíðs beint úr aukaspyrnu (myndskeið)
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.