Leita í fréttum mbl.is

Fagnaðarefni

Wall-of-guitarsVar að lesa glóðvolgt fréttabréf frá Iceland Airwaves og sá að danski indí-leibellinn Crunchy Frog mun senda þrjá listamenn úr sínum röðum á hátíðina í ár: Tremelo Beer Gut, Heavy Trash og síðast en ekki síst.... Snake and Jet´s Amazing Bullit Band! Þeir sem hafa lesið bloggið af einhverju viti muna kannski eftir þegar ég bloggaði um þetta band í aprílmánuði.

SAJABB (Snake and Jet's Amazing Bullit Band) er eitt það skemmtilegasta og frumlegasta sem fram hefur komið á dönsku tónlistarsenunni síðustu misserin og kom það svo sem engum á óvart að eitt framsæknasta danska leibelið, Crunchy Frog, skildi semja við þá. Hjá þeim eru fyrir listamenn á borð við Power Solo, Junior Senior og Epo-555, allt bönd sem eru Íslendingum að góðu kunn.

Fyrsta breiðskífa sveitarinnar er væntanleg núna í lok mánaðarins og mun hún bera heitið "X-ray spirit". Það verður spennandi að rúlla henni í gegn. Ég mæli eindregið með að íslenskir tónlistarunnendur flykkjist á Airwaves og sjái SAJABB, ég er svo lánsamur að hafa séð þá Thomas og Thor spila læv, það var hreint fyrirtak!

Á heimasíðu sveitarinnar er að finna tónlistarspilara og mæli ég með því að þið rennið þeim fimm lögum sem þar eru í gegn, gott stöff. Lögin eru (smellið hér til að hlusta á öll):
1. Favourite (af "Building Garbage Structure", EP frá 2006)
2. Garbage structure (af "Building Garbage Structure", EP frá 2006)
3. Teamrider (af "Building Garbage Structure", EP frá 2006)
4.  X-ray spirit (af "X-ray spirit", LP sem kemur út í sept. 2007)
5. Structure2 (af "Building Garbage Structure", EP frá 2006)

[Heimasíða] [Myspace]


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

og ekki má gleyma því að hann Thor úr SAJABB er hálfur íslendingur.. jamm hamm

Eggert (IP-tala skráð) 14.9.2007 kl. 06:19

2 identicon

Auu, takk fyrir að kynna mér fyrir þessari hljómsveit. Ég á örugglega eftir að kíkja á hana á Airwaves.

Magnus Andersen (IP-tala skráð) 15.9.2007 kl. 15:42

3 Smámynd: My Music

Eggert: vissulega rétt hjá þér, Thor er hálfur Íslendingur. Ef mér skjöplast ekki þá er móðir hans ramm íslensk. Hann hlítur þá að nota ferðina í að heimsækja ættingjana.

Magnús: Lítið að þakka. Mæli með að þú sjári SAJABB læv, hressilega góðir. Btw. Flottar myndir hjá þér á flickr-inu!

My Music, 20.9.2007 kl. 12:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

My Music
My Music
Bloggað um tónlist.
Sendu mér línu: blogmymusic[at]gmail.com
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 688

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband