Leita í fréttum mbl.is

Specials og hressandi getraun

Mikið rétt hjá Agli, lagið sem var merkt "xxxxx-xxxxx" í spilaranum hér til hægri heitir "Ghost town" með The Specials. Þeir kölluðu sig upphaflega The Coventry Specials og það svarar auðvitað spurningunni um hvaðan þeir komu. Allt laukrétt.

The Specials spiluðu nokkurs konar nýbylgju-ska tónlist og kom lagið sem spurt var um út árið 1981. Þetta var mikil ádeila á ástandið sem ríkti í heimalandi þeirra og þá sérstaklega á stefnu Tatcher-ríkisstjórnarinnar en hún þótti leiða til mikils atvinnuleysis og fór heimaborg Specials-manna ekki varhluta af því.  Eitt mesta atvinnuleysi landsins á þessum tíma var einmitt í Conventry, hátt í 20%.

Það má auðvitað deila um hvort að The Specials teljist vera "one hit wonders"eða ekki, þeir náðu fleiri lögum en þessu inná topp 10 í UK og teljast flytjendur á því kaliberi sjaldnast til eins smells undra. Ég, persónulega, þekki bara þetta lag með þeim og því falla þeir undir þennan vafasam hatt hjá mér.

Lagið "Ghost town" var þrjár vikur á toppnum í Bretlandi og auðvitað víðar í Evrópu. Myndband við lagið:

Getraun
Ég hef alltaf haft smá áhuga á plötuumslögum og þá aðallega þeim sem eru í eldri kantinum (60s, 70s, 80s). Í gamni  mínu þá datt mér í huga að skella fram getraun sem tengist plötuumslögum, svona aðeins til þess að kanna snilli og gáfur lesenda síðunnar.

Þetta eru þrjár spurningar og allar tengjast þær plötuumslögum með skírskotun í atburði úr mannkynssögunni. Í öllum tilvikum spyr ég um heiti á plötu og flytjanda. 

1. Í maímánuði árið 1937 fórst “stýranlegur” loftbelgur við Lakehust í New Jersey. Augnablikið sem slysið átti sér stað prýðir frægt plötualbúm. Hvaða heitir platan og hverjir flytja?

2. Annað sögufrægt slys átti sér stað síðla árs 1895 í París, nánar tiltekið á Gare Montparnasse lestarstöðinni. Á plötuumslagi frá upphafi 10. áratugarsins er hægt að sjá slysstaðinn nokkrum augnablikum eftir að slysið átti sér stað. Hvað heitir platan og hverjir flytja?

3. Í upphafi sumars árið 1963 brenndi Víetnamskur búddamunkur sig til dauða á miðjum gatnamótum í miðbæ Saigon. Með þessu var hann að mótmæla ofsóknum Suður-Víetnamska forsetans og hans stjórn á hendur búddatrúa. Á plötuumslagi frá upphafi síðasti áratugar, sést þegar búddamúnkurinn situr í ljósum logum – hvað heitir platan og hverjir flytja?

Þeir sem hafa áhuga og/eða nennu svara í kommentadálkinn hér fyrir neðan.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

  1. Er þetta ekki bara fyrsta plata Led Zeppelin sem ber sama nafn? 
  2. Hef ekki hugmynd 
  3. Er plata Rage Against the Machine sem heitir sama nafni.

HÖF (IP-tala skráð) 5.6.2007 kl. 11:42

2 identicon

1. Led Zep -  - Samnefnd

2. Mr. Big - Lean into it

3. Rage Against the Machine - Samnefnd

Egill Harðar (IP-tala skráð) 5.6.2007 kl. 13:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

My Music
My Music
Bloggað um tónlist.
Sendu mér línu: blogmymusic[at]gmail.com
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 682

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband