Leita í fréttum mbl.is

Ný plata frá Coldplay komin með nafn

ColdPlay1WEB Þægindispoppararnir úr Coldplay er að verða klárir með sína fjórðu breiðskífu, hún kemur víst út þann 16. júní næstkomandi. En það er víst komið nafn á stykkið og haldið ykkur fast: "Viva la Vida".
Ósjálfrátt (og það er einstaklega sorglegt!) þá bætir maður við "Loca" og hugsar um hin geðþekka skemmtikraft Ricky Martin.

Nú veit ég ekkert hvernig stíllinn verður á þessari plötu, vonandi ekki Latínó, en ég verð að játa að ég er nokkuð spentur að heyra þessa plötu. Ég hef fylgst með þessari sveit frá því að "Parachutes" kom út sumarið 2000 og hef séð þá nokkuð oft "læv" bæði hér heima og erlendis. Þetta er eitt af stóru nöfnunum í poppinu í dag og eiga þeir ófá lögin sem eiga eftir lifa lengi og teljast til "klassíkera" þegar fram líða stundir.

Nafnið "Viva la Vida" er, við fyrstu sýn, einstklega lummulegt nafn á plötu en best að bíða með alla dóma þar til eintakið er komið út. Nafnið er fengið frá mexíkósku listmálaradívunni Fridu Kahlo, en Chris Martin sá þennan frasa á einu málverka Fridu. Upphaflega var orðrómur uppi um að platan skyldi heita "Prospekt", einhvern veginn hljómar það betur, svo hafði maður heyrt "Death and all his friends" sem er ekki alveg jafn kúl.

Það er eitthvað sem segir mér að Coldplay eigi eftir að spila á Hróarskeldu-hátíðinni, það myndi henta einstklega vel svona tveimur vikum eftir að platan kæmi út.

Fréttir um nafnið á plötunni: NME, Rolling Stone, BBC.

Og svona rétt í lokin, gamla góða Coldplay, "Shiver".

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Lifi lífið er ekkert mjög lummulegt - en Coldplay er einhver lummulegasta hljómsveit tónlistarsögunnar. Ég var að vona að þeir væru hættir.

Markús frá Djúpalæk, 20.3.2008 kl. 11:56

2 identicon

Verð að vera ósammála Markúsi!!! :) Fannst Parachutes platan einmitt meistarastykki... og píanóleikurinn á X&Y einstaklega heillandi! Sérstaklega náttúrulega í Clocks! ;) Þú ert alveg komin inní blogg hringinn! Sýnist við með töluvert líkan tónlistarsmekk... og ætla sko ekki að missa af neinu nýju sem þú setur hingað inn ha ha ha...

Gleðilega páska! :o) Kristín Ósk  

Kristín Ósk (IP-tala skráð) 21.3.2008 kl. 00:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

My Music
My Music
Bloggað um tónlist.
Sendu mér línu: blogmymusic[at]gmail.com
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 647

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband